26. september 2008 klukkan 12:27
Jæja lömbin okkar.. við erum alveg búnar að gleyma okkur í amstri dagsins og skilið bloggið eftir:)
Við erum enn í 2 vikna fríi frá skólanum sem lýkur núna á sunnudaginn, þurftum samt að fara í skólann stutt í dag…ugh
En allavega þá skelltum við okkur allaleið upp til Cairns í 11 daga.

Við fengum þetta æðislega veður alla ferðina okkar 30-32 stiga hiti og sást ekki ský á himni alla ferðina…við komum heim eins og svertingjar! Þetta var æðisleg ferð í alla staði, kynntumst alveg heilum HELLING af liði, allstaðar frá úr heiminum og ennþá fleirri úr Sydney sem við kynntumst rosa vel og er djammhittingur planaður bráðlega með því liði sem er 14 manna vinahópur og ÞEIR EIGA BÁT OG WAKEBOARD :D … Akkurat á sama tíma og við vorum á hostelinu voru 3 fótboltalið (rugby/AFL) sem voru að fagna AFL end of season…svo þeir voru drukknir 24/7 og ekkert smá gaman af þeim…kynntumst helling af þeim líka, þeir voru smá spes en sumir ágætir. Það hefur verið gaman hjá þeim að fara heim í vinnu eftir þessa ferð..margir búnir að raka af sér hálfann hausinn og alllann hausinn, einn bjó bara til gat í eyrað á sér bara sisvona meðan hann lá við sundlaugina... drekkandi coctaila og leikandi í lauginni, aðrir léku álfa og superman og hinir voru útúrstimplaðir um allt andlit og líkama til að reyna mynda skemmtilegt far á líkama sinn eftir sólina eða eitthvað álíka… 2 fengu sér líka tattoo á rassinn... risa broskall sem undir stóð.. don't worry be happy... hahaha
vegna láta lætanna í footy gaurunum voru dyraverðirnir alltaf ready til að hlaupa af stað... eða rúllla eins og þeir gerðu meira... þetta voru STÆÐSTU hringlóttustu dyraverðir sem við höfum séð... þeir voru svona blanda af aboriginal/kíví ... krípí gaurar... við vorum alltaf á leiðinni að taka af mynd af þeim en þorðum því ekki.. en ef við hefðum látið til slaga stríða þá hefði hún verið eitthvernvegin svona..
Footy gaur að glíma við einn dyravörðinn
Það var líka voða tilgangslaust eitthvað að reyna að hafa sig til þarna, maður endaði alltaf sveittur með fluffy hár 3 mín eftir að maður var að reyna gera eitthvað útaf hitanum þannig að þið horfið bara framhjá sveittu myndunum :D
Jæja skulum byrja á byrjuninni svo þessi færlsa fari ekki alveg í algjöra flækju....
Er við mættum til Cairns þá löbbuðum við á vegg, svo rosalegur var hitinn og hárið ekki lengi að fljóta upp í loftið og verða eins og á úfni hænu og þurftum við að afklæðast í snarhasti…Leið okkar lá beinustu leið á hostelið okkar Calypso og þar sem það var komið myrkur hvort sem er ákváðum við barasta að setjast niður í nokkra drykki með liði sem við kynntumst þarna…. rétt misstum af hlaðborðinu en viðtók happy hour og tilboð á hinu og þessu...
Leiðin lá svo niður í bæ þar sem við vorum stimplaðar hægri vinstri ... við týndum strákunum á fyrsta stað og þar sem við höfðum aldrei komið þangað áður eða séð staðinn í birtu þá eiddum við miklum tíma í að labba í hringi og leita að stöðum... komumst svo að því daginn eftir í dagsbirtunni að þeir voru allir á nánast sama stað.. haha
Á laugardeginum byrjuðum við á því að skoða okkur um bæinn.... og var fyrsta stopp lagoonið - Esplenade...
fórum þó snemma uppá hostel aftur því um kvöldið var
THE ULTIMATE PARTY sem er víst besta pub crawl á plánetunni….eða svo segja þeir…og voru þeir sko alveg að standast undir nafninu. Þessi ferð kostaði 1500 íslenskar og við fengum þennan svakalega BBQ mat áður en lagt var af stað í London strætóinn sem flutti okkur á milli staða, flakkað var á milli 5 pöbba og alltaf var mesta stemmningin á efstu hæðinni í strætó .. þar var sko sungið og dansað eins og fólk ætti lífið að leisa. Einn strákurinn var svo öfundsjúkur út í efri hæðina því hann þurfti að vera á neðri hæðinni í byrjun að hann ákvað að klifra útúm gluggann og upp á efri hæðina, en í þessum hasarlátum sínum missti hann báða skónna sína útum gluggann og enduðu þeir á götunni lengst útí buska og allir bílar búnir að keyra yfir þá og þurfti hann víst að fara heim án þess að geta komist á fyrsta staðinn..UNLUCKY! Nokkrir leikir voru á sumum stöðunum og var t.d einn leikurinn þannig að það var par saman og svo kallaði dómarinn einhverjum dónónöfnum og þá þurfti fólkið að fara í þá stellingu…og meðal annars þurfti greyið gaurarnir að halda á stelpunum þegar þær stukku í fangið á þeim og á bakið á þeim og fangið og dónó stellingu og aðra og aðra og voru þeir farnir að svitna og titra…ekkert smá fyndið... Og voru verðlaunin fyrir þann leik trip fyrir 2 til New Zealand...!!



Sunnudagur. Sóluðum okkur smá við lagoonið og tókum smá sundsprett og ómægood hvað það var gott að kæla heilann í kaldri lauginni..mmm…
Ætluðum svo að panta okkur ferð til Great barrier reef og Cabe Tribulation og vorum með eina ferð í huga, en við urðum svo heppnar að hitta á einn af partyhöldurunum frá ultimate partyinu kvöldið áður á einni ferðaskrifstofunni..og fannst hann við hafa verið svo ótrúlega skemmtilegar og of kors spilaði það inní like always að við vorum frá íslandi að hann gaf okkur þennan svakalega díl til great barrier reef og Cabe og næstum helmingsafslætti OG upgreidaði allar ferðirnar NÆS!!
Og svo af því að við fórum í Ultimate party ferðina fengum við að vita leyndarmál sem má víst ekki auglýsa og það var að fríir drykkir voru á einum klúbbnum í einn klukkutíma stanslaust og svo klukkutímann eftir það kostuðu drykkirnir 50 krónur og svo 100 krónur eftir það og framvegis…LÚXUS. Og svo fengum við frímiða inná flestalla klúbbana sem var þess virði að fara á og afsláttarmiða á drykki og ég veit ekki hvað og hvað og svo gaf hann okkur VIP miða á næsta Ultimate party næsta Laugardag og hefðum ekkert þurft að borga. Við löbbuðum svo sannarlega út frá honum með bros á vör.
Héldum svo uppá hostel að hafa okkur til og brunuðum svo niður á Mad Cow þar sem drykkirnir voru fríir :D ..jey

Mad Cow

our view by the lagoon
Mánudagur. Wake up call klukkan 6. Og lagt af stað niður á höfn með stýrur í augunum. Þar beið okkar þessi glæsileiki bátur sem tók okkur til great barrier reef, sundeck og allur pakkinn…SWEET.. flatmöguðum bara í klukkutíma framan á bátinum og nutum góða veðursins... staffið á þessum stað var ekkert öðruvísi heldur en allstaðar annarsstaðar og voru allir alveg yfirsig hrifnir af því að við værum frá íslandi við sátum í makindum okkar nýbúnar að fylla á 'diskinn' okkar og vorum að gúffa í okkur þegar þeir tilkynntu eitthvað í míkrafóninn og titlaði okkur…”The Beauty queens from Iceland” frekar vandræðalegt og náðum við að toppa það með því að vera með fullan munnin og hálfan heiminn á milli tannnanna.
Aaron einn af köfunargaurunum var líka ekki lengi að taka okkur ástfóstri á meðan ferðinni stóð og var alltaf að messa í hárinu okkar, vitum samt ekki alveg hvað málið var með það. Og af yfir 6 hópum endaði hann svo sem instructorinn okkar þegar við fórum að kafa og var hann sí potandi í okkur með hvalakúk eða hvað þetta var sem hann fann þarna ofaní sjónum.
